Almenningur er óþolimóður gagnvart hyskinu sem kom okkur fram á bjargbrúnina. Réttarkerfið segir málin flókin og erfið og það taki tíma að ákæra. Á meðan eru bankarnir að kom gjaldþrota fyrirtækunum í hendur fyrrum eigenda og afskrifa skuldir einkahlutafélaga sem eigendur skilja eftir með miljarða skuldir en sleppa persónulega sjálfir. Ríkisvaldið segist ekkiert geta gert, sem eflaust er rétt. ENN!!! Má ekki svipta þessa aðila vegabréfi þannig að þeim er gert erfiðara að halda áfram iðju sinni.
13. mars 2010
|
arri |
Óflokkað, Stjórnmál, Samfélagsmál |
Engin ummæli
Stjálfstæðisflokkurinn styrkist í réttu hlutfalli við skítinn sem rennur undan honum. Yfir 30% íslendinga styðja hann. Þrátt fyrir að hafa ekki beðið afsökunar á þeirri stöðu sem þeir komu þjóðinni í. Þótt vafningar, kúlulánaþegar, og almennir glæpamenn sitji á þingi fyrir þá. Þrátt fyrir að þeir eigi Icesave málið 100%, svo fátt eitt sé nefnt.
Hvað skyldi þessi gjörningur Stykkishólms- Stulla færa Sjálfstæðisflokknum mikla fylkisaukningu?Íslendingar elska óheiðaleikann og skítlega eðlið.
1. mars 2010
|
arri |
Óflokkað, Stjórnmál |
Engin ummæli
Það er nöturleg staðreynd að einn helsti málsvari vinstristefnunnar Ögmundur Jónasson sé búinn að draga allan vígamóð úr ríkisstjórninni og gera hana nánast valdalausa. Ögmundur virðist ekki átta sig á að um leið að hann gaf höggstað á VG þá nýtti stjórnarandstaðan það út í það ítrasta. Því Icesave er stjórnarandstöðunni ekkert annað en tæki til að koma ríkisstjórninni frá og þá verður kvótakerfið “save forever” og völdin einnig.
Vinstri stjórn verður ekki á Íslandi í náinni framtíð, þökk sé Ögmundi. Það verður Ögmundur á ræðustóli Alþingis sem kemur til með að mala út í loftið og pretika hugsjónir sínar eins og Don Quexote að berjast við vindmillur.
1. mars 2010
|
arri |
Óflokkað, Stjórnmál |
Engin ummæli